Alimak scando

Hágæða mann- og vörulyftur

product-guide-alimak-hoist

Alimak scando 65/32 mannlyfta

Ný kynslóð af byggingalyftum á samkeppnishæfu verði.

Nýja ALIMAK SCANDO 65/32 lyftan er áreiðanleg og skilvirk byggingalyfta sem býður upp á einfalt stýrikerfi, auðveldar uppsetningar og samkeppnishæft verð. Alimak Scando 65/32 er hönnuð af Alimak Hek í Svíþjóð sem eru þekktir fyrir gæði og öryggi í hönnun og framleiðslu á byggingalyftum.

ALIMAK SCANDO 65/32 býður upp á aukna burðargetu, auðvelda stjórnun og orkusparnað, en jafnframt öryggið og notagildið sem Alimak Hek lyftur eru þekktar fyrir. Ný hönnun  úr sterkum gæðaefnum tryggir lága orkuþörf, bætta skilvirkni í notkun og minni slit sem allt dregur úr kostnaði eigenda.

ALIMAK SCANDO 65/32 er hönnuð fyrir bæði mann- og vöruflutninga og er fáanleg í bæði sem stakur vagn eða tvöfaldur á einum turni. Hægt að er fá hana í mismunandi útfærslum með burðargetu upp að 2,400 á vagn og stærð vagnsins getur verið allt að 1,5 x 3,2 m að stærð. Bæði er hægt að fá lyftuna útbúna með DOL (Direct-on-line) eða FC (frequency control) drifi. Nútímalegt örgjörvastýrikerfi með lendingarstýringu auðveldar alla stjórnun og notkun á lyftunni.

Samhæfi

ALIMAK SCANDO 65/32 getur notað staðlaðan aukabúnað sem fylgir SCANDO 650 kerfinu, sem eykur notkunarmöguleika á hagkvæman hátt. Aukahluti s.s. turna, festingar og lendingarbúnað er hægt að útbúa og/eða flytja með lyftunni svo hún henti sem flestum verkefnum sem þarfnast flutninga á hæðir, hvort sem um er að ræða lægri eða hærri byggingar.

Öryggi

ALIMAK SCANDO 65/32 er með Alimak fallbremsu, ofþyngdarskynjara og vél- og rafrænt hurðakerfi sem tryggir öryggi. Lyftan er í gegnum mjög strangar öryggis- og gæðaprófanir áður en hún er sett í sölu.

Öryggi er lykilatriði í öllum Alimak Hek vörum og ALIMAK SCANDO 65/32 er þar engin undantekning. Fallbremsan er þar allra mikilvægasti hlutinn. Allar fallbremsur eru framleiddar og prófaðar af Alimak Hek í sérútbúnum turni áður en þær fara í sölu.

Tæknilegar upplýsingar

Þyngd farms 2,000  kg
Hraði 38 m/mín
Max. hæð 200 m
Breidd á vagni (innanmál) 1,5 m
Lengd á vagni (innanmál) 3.2 m
Mótor stýring DOL/FC
Lengd á masturseiningu 1.508 m
Þyngd á masturseiningu með einum rekka 118 kg